by arnavalsadmin2015 | 24.12.2006
Kvika Kvik-mynd Café Karólína 2006
Kvika er fyrsta eiginglega videomálverkið sem ég vinn fyrir skjái og myndvarpa. Ég varð heilluð af hugtakinu kvikmynd og fannst verkin mín í raun vera Kvikar-Myndir, þar eð þau hreyfast og eru unnin með videotækni, en eru þó meira eins og lifandi málverk. Kvika er unnið upp úr sýningunni Kvika sem var rýmismálverk sett upp í boxinu á Akureyri sem aftur var þróað út frá sýningaröðinni “Ég er ögn í lífrænni kviksjá”
by arnavalsadmin2015 | 03.01.2006
Human Kaleidoscope – Lífræn Kviksjá
Á árunum 2003 – 2008 ferðaðist ég um á milli margvíslegra sýningarstaða með gagnvirkt verk sem ég kallaði ” Lífræn kviksjá” eða “Human kaleidoscope”. Verkið byggir á því að setja upp einfaldan tæknibúnaðí tilteknu rými og gefa áhporfandanum færi á að leika sér með eigin birtingarmynd og skapa myndir í rýmið. Ég skapa sama umhverfi og er inni í kviksjánni eða kaleidoscopinu sem maður lék sér með sem barn nema hvað ég þen það upp í stærra rými sem manneskjan getur gengið inn í og verður hún þá um leið ögnin sem breytir þeirri mynd sem við sjáum. Lífræna kviksjáin er ferlisverk og breytist og þróast eftir því hvaða rými hún mætir. Ég setti hana upphaflega upp í Ketilhúsinu á Akureyri en einnig í Nýlistasafninu, í Hafnarfjarðarleikhúsinu, í Garðskagavita. Ég setti hana einnig upp í skólum víða um land, á ráðstefnum og á heimili fyrir
einstaklinga með Alzheimer í Hollandi. Hvert rými sem kviksjáim mætir gefur verkinu nýtt form og ég sé það frá nýjum og oft óvæntum sjónarhornum. Það myndast einhverskonar sjálfssefjun þegar maður leikur sér í kviksjánni og það hefur verið mjög
áhugavert fyrir mig að fylgjast með ólíkum einstaklingum á öllum aldri gleyma sér í henni.
Brot úr Lífrænni Kviksjá – Bjartir dagar 2005 – Hafnarfjarðarleikhúsið
Bjartir dagar-document 2005 from Arna Valsdottir on Vimeo.